15. apríl, 2026
Fréttir

Ráðgefandi íbúakosning um nafn á sameinuðu sveitarfélagi hófst í dag, 15. apríl, og stendur til og með 27. apríl.

Allir íbúar með lögheimili í sveitarfélögunum Borgarbyggð og Skorradalshreppi, 16 ára og eldri geta tekið þátt í kosningunni í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar.
Til að komast þar inn þarftu rafræn skilríki.
Smelltu hér til að fara í þjónustugáttina.

Þrír möguleikar

Valið er á milli þriggja kosta sem fela í sér mismunandi tillögur. Hver og einn íbúi hefur eitt atkvæði.

Valmöguleikarnir eru þessir:

· Borgarbyggð.

· Skorradalshreppur.

· Annað: ____________________________

 

Tekið er fram að kosningin er ráðgefandi en ekki bindandi. Fyrst og fremst er verið að kanna hug og vilja fólks gagnvart nafni fyrir sameinað sveitarfélag. Það verður svo hlutverk nýrrar sveitarstjórnar að taka endanlega ákvörðun um hvaða nafn hið sameinaða sveitarfélag kemur til með að bera.

Mikilvægt er að sem flestir taki þátt svo að könnunin endurspegli sem best viðhorf íbúa.

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.