Dagana 26. apríl – 3. maí verður haldin Mannræktarvika í Borgarbyggð. Markmið vikunnar er að efla samkennd, jákvæðni, gleði og virðingu í samfélaginu okkar og hvetja til þess að við sýnum hvert öðru hlýju í daglegu lífi.
Hugmyndin er einföld en getur verið áhrifarík: að framkvæma lítil góðverk sem styrkja samfélagið – og það þarf ekki að kosta neitt. Með sameiginlegu átaki getum við haft raunveruleg áhrif á líðan og samskipti í samfélaginu. Við hvetjum skóla, stofnanir, fyrirtæki og íbúa til að taka þátt á sinn hátt.
Þátttaka getur verið með ýmsum hætti, til dæmis:
• að hvetja til kurteisi og jákvæðra samskipta
• að hrósa og sýna þakklæti
• að skapa samverustundir á vinnustöðum eða í skólum
• að bjóða í kaffi eða mat
• að taka þátt í viðburðum vikunnar
• að leggja sitt af mörkum í mótun samfélagssáttmála
Einnig hvetjum við til virkrar þátttöku á samfélagsmiðlum þar sem jákvæð skilaboð og góðverk eru sýnileg, sem og til sjálfsræktar – að huga að eigin líðan og vellíðan sem grundvelli góðra samskipta.
Þema vikunnar í grófum dráttum:
• Sunnudagur – Opnun vikunnar, plokkdagurinn og grill í Skallagímsgarði
• Mánudagur – Hvatnig til að sýna kurteisi og virðingu
• Þriðjudagur – Hvatnig til að sýna hrós og þakklæti
• Miðvikudagur – Hvatnig til að sýna samveru
• Fimmtudagur – Hvatnig til hreyfingar og útivera
• Föstudagur – Samfélagsdagur
• Laugardagur – Hvatnig til gleði og leiks
• Sunnudagur – Samfélagssáttmáli og endað með messu.
Í vikunni verða fjölbreyttir viðburðir og samverustundir þar sem allir geta tekið þátt og lagt sitt af mörkum til að skapa hlýtt og uppbyggilegt samfélag.
Við viljum sérstaklega hvetja ykkur til að taka þátt og virkja ykkar starfsfólk, nemendur eða samstarfsaðila í verkefninu. Í aðdraganda vikunnar munu koma frekari upplýsingar um dagskrá vikunnar þar sem allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi.
Til þess að efla þátttöku í mannræktarvikunni langaði okkur einnig að bjóða á kynningarfund á Teams föstudaginn 24. apríl kl. 12:00 þar sem farið verður yfir fyrirkomulag vikunnar, hugmyndir og svör við spurningum. – sjá meðfylgjandi TEAMS hlekk
Við vonumst til að sjá sem flesta taka þátt og leggja sitt af mörkum til að gera Mannræktarvikuna að jákvæðri upplifun fyrir alla í Borgarbyggð.
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
