Barnamenningarhátíðin OK hefst formlega í dag. Hátíðin er tileinkuð allri menningu barna, menningu sem börn skapa sjálf, taka þátt í og njóta. Lögð er rík áhersla á að verk og framlag barna og ungmenna fái að njóta sín í sviðsljósinu og verði gestum til sýnis.
Skipulag og framkvæmd hátíðarinnar er í höndum Listaskóla Borgarfjarðar í góðu samstarfi við fjölmarga aðila, þar á meðal skóla og fyrirtæki í sveitarfélaginu. Ljóst er að um er að ræða fjölbreytta og metnaðarfulla viðburði sem höfða til allra.
Framundan er því spennandi hátíðardagskrá í Borgarbyggð þar sem skapandi starf barna og ungmenna verður í forgrunni og íbúum ásamt gestum gefst kostur á að taka þátt í lifandi og fjölbreyttu menningarlífi.

Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
