14. nóvember, 2025
Fréttir

Borgarbyggð og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hafa gert með sér samstarfssamning um verkefnið Mál og læsi: Snemmtæk íhlutun í leikskólum. Markmið verkefnisins er að hámarka árangur allra barna hvað varðar málþroska og grunnþætti læsis og fyrirbyggja eða draga þannig úr líkum á að þau glími við lestrarerfiðleika seinna meir. Einnig er markmiðið að auka þekkingu og hæfni alls starfsfólks leikskólanna með það fyrir augum að öll börn fái íhlutun og áskoranir við hæfi í leik og starfi.

Af þessu tilefni var haldinn fræðsludagur fyrir allt starfsfólk í leikskólum Borgarbyggðar. Þar buðu þær Katrín Ósk Þráinsdóttir, Signý Gunnarsdóttir og Tinna Sigurðardóttir sérfræðingar frá Miðstöð menntunar og skóla­þjónustu upp á fræðsluerindi sem fjölluðu m.a. um lærdómssamfélög, málþroska, virkt fjöltyngi og málörvun. Þá afhentu þær leikskólunum veglegar gjafir sem eiga eftir að nýtast vel í verkefnavinnunni. Í lok fræðsludagsins var samstarfssamningur undirritaður af Freyju Birgisdóttur sviðsstjóra matssviðs hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Júlíönu Vilhjálmsdóttur verkefnastjóra í skólaþjónustu Borgarbyggðar.

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.