26. febrúar, 2026
Fréttir

Borgarbyggð kynnir nýjan markaðs- og úthlutunarvef fyrir lóðir í sveitarfélaginu. Vefurinn er hugsaður til markaðssetningar á nýjum lóðum sem tilbúnar eru til úthlutunar í Borgarbyggð og einnig á hverfum sem brátt munu koma til úthlutunar. Þá veitir vefurinn innsýn í fjölbreytt mannlíf og aragrúa tækifæri í Borgarbyggð.
Þá er hægt að skoða staðsetningu lóða, stærðir, skipulag og helstu upplýsingar á einfaldan og skýran hátt.  Markmiðið er að gera umsóknarferlið aðgengilegra og veita betri yfirsýn yfir uppbyggingu í sveitarfélaginu.

,,Það er mjög kærkomið að nýr lóða- og kynningarvefur Borgarbyggðar sé kominn í loftið.“ segir Stefán Broddi Guðjónsson, Sveitarstjóri Borgarbyggðar. ,,Vefurinn býður íbúa og atvinnulíf velkomin í Borgarbyggð og vekur athygli á tækifærum til uppbyggingar fyrir nýja jafnt sem núverandi íbúa. Hann undirstrikar gott mannlíf, fjölbreytta og fagra náttúru og ótal tækifæri í menntun og menningu.“
Stefán Broddi nefnir einnig að  vefurinn býður öllum kynslóðum að njóta þess að búa í Borgarbyggð. ,,Með vefnum gefst gætifæri til að sækja allar helstu upplýsingar um nýjar lóðir og sjá staðsetningu þeirra með myndrænni hætti en áður.“

Mikil uppbygging er í Borgarbyggð, í þjónustu, mannvirkjum og gatnagerð. Jafnt og þétt mun lóðum til úthlutunar fjölga sem jafnóðum verða kynntar á vefnum. Jafnóðum skapast ný tækifæri í búsetu og atvinnurekstri í Borgarbyggð.

Slóðina á vefinn má finna hér 

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.