26. ágúst, 2025
Fréttir

Allir fasteignaeigendur í Borgarbyggð sem greiða gjald vegna reksturs gámasvæðis geta sótt rafræn endurvinnslukort fyrir Gámastöðina í SólbakkaKortið virkar þannig að þegar komið er inn á gámasvæðið er kortið skannað, starfsmaður á gámasvæðinu tekur út af kortinu í samræmi við það magn af gjaldskyldum úrgangi sem verið er að losa sig við.
Starfsmaður gámasvæðis metur magn og tekur út af kortinu í samræmi við magn gjaldskylds úrgangs. Þegar inneignin klárast er innheimt samkvæmt gjaldskrá.

Einungis er klippt af korti fyrir gjaldskyldum úrgangi. Tekið er á móti ógjaldskyldum úrgangi án þess að klippa af kortinu.

Mikilvægt er að úrgangur sem komið er með á gámasvæði sé flokkaður þar sem mikið af úrgangi er gjaldfrjáls en ef flokkuninni er ábótavant þarf að greiða fyrir allan úrganginn.

Endurvinnslukort er sótt á vefslóðina https://borgarkort.is/

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.