20. apríl, 2026
Fréttir

Næsta söfnun á rúlluplasti stendur þessa vikuna 20. apríl-25. apríl og fram í næstu viku.
Samkvæmt fyrirkomulagi er byrjað að safna vestast á Mýrunum, Hraunhreppi og Kolbeinsstaðarhreppi, að því loknu er safnað upp í Norðurárdal og tökum svo dalina koll af kolli niður að Andakíl.

Við viljum minna á að rúlluplastið þarf að vera í böggum: hvítt sér, svart sér og grænt, blátt, bleikt saman. Rúlluplastið þarf að vera hreint af öllu rusli, heyi og drullu.
Plastið má ekki vera í stórsekkjum né öðrum pokum, og þarf plastið að vera aðgengilegt.
Við tökum einnig stórsekki hjá bændum, en þurfa þeir þá að vera sameinaðir saman í t.d. einn stórsekk.

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.