10. október, 2025
Fréttir

Stjörnuleikar í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi þann 19. október.

Stjörnuleikar ,,Allir með“ verða haldnir í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi sunnudaginn 19. október á milli kl 11:30 og 13:00. Um er að ræða samstarfsverkefni UMSB, Borgarbyggðar og svæðisfulltrúa íþróttahéraða á Vesturlandi.
Þetta er skemmtilegur íþróttadagur hugsaður fyrir börn á öllum aldri með sérþarfir sem og þau börn sem hafa ekki fundið sig hingað til í hefðbundnu íþróttastarfi. Þetta er dagur fyrir leik, gleði og  samveru. Öll fá að prófa ýmsar íþróttagreinar og leiki ásamt því að hitta lukkudýr ,,Allir með“ verkefnisins, hann ofurskemmtilega Sóla.
Öll fjölskyldan er velkomin og vinirnir líka!

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.