12. maí, 2026
Fréttir

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2026. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2026 og skal umsóknum skilað í gegnum „mínar síður“ á heimasíðu Borgarbyggðar eða til fjármálastjóra.

Einnig er hægt að skila umsókn á umsóknareyðublöðum, en eyðublöðin má nálgast í þjónustuveri Ráðhúss Borgarbyggðar að Digranesgötu 2 í Borgarnesi

Reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka má finna hér

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.