7. janúar, 2026
Tilkynningar

Borgarbyggð vill minna íbúa á að lífrænn úrgangur skal ávallt fara í bréfpoka. Bréfpokar henta best til moltugerðar og tryggja að úrgangurinn sé meðhöndlaður á réttan hátt.

Athugið:

  • Ekki er tekið við lífrænum úrgangi í maíspokum
  • Ekki er tekið við lífrænum úrgangi í plastpokum eða öðrum pokum en bréfpokum

Bréfpoka má nálgast í flestum matvöruverslunum.

Við þökkum íbúum fyrir að fylgja leiðbeiningum og stuðla að umhverfisvænni úrgangsmeðhöndlun í Borgarbyggð.

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.