Borgarbyggð vill vekja athygli íbúa og samstarfsaðila á svikapósti sem nú er í umferð og virðist vera sendur í nafni starfsmanns sveitarfélagsins.
Pósturinn ber heitið “Invoice” eða „Reikningur“ og inniheldur hlekk sem viðtakendur eru hvattir til að opna. Um er að ræða svikatilraun (phishing), þar sem markmiðið er að blekkja fólk til að veita aðgang að viðkvæmum upplýsingum eða setja upp skaðlegan hugbúnað.
Mikilvægt er að hafa eftirfarandi í huga:
- Ekki smella á hlekkinn í póstinum
- Ekki opna viðhengi sem fylgja
- Eyða póstinum tafarlaust
- Tilkynna grunsamlegan póst til viðeigandi aðila eða tæknideildar
Borgarbyggð tekur málið alvarlega og vinnur að því að koma í veg fyrir frekari dreifingu svikapóstsins. Íbúar eru hvattir til að sýna aðgát og vera á varðbergi gagnvart óvæntum tölvupóstum.
Innihald tölvupóstsins lítur svona út:

Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
