Vertu með og hafðu áhrif
Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar
Vinna við mótun nýrrar þjónustustefnu Borgarbyggðar stendur yfir og lykillinn að því að stefnan verði farsæl er að íbúar taki virkan þátt í ferlinu. Markmiðið er að móta framtíðarsýn um skilvirka, nútímalega og aðgengilega þjónustu sveitarfélagsins sem taki mið af þörfum og væntingum allra íbúa.
Af þessu tilefni verður efnt til íbúafunda þar sem rætt verður um helstu áherslur, tækifæri til umbóta og hvernig þjónustan getur best stutt við samfélagið. Allir íbúar eru hvattir til að mæta, taka þátt í líflegum umræðum og koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Fundirnir verða sem hér segir:
Mánudaginn 2. nóvember
- Í Grunnskóla Borgarfjarðar, Hvanneyri, kl. 17.00.
- Í Grunnskóla Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjum kl. 20.00.
Þriðjudaginn 3. nóvember
- Í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi kl. 20.00.
Miðvikudaginn 4. nóvember
- Í Grunnskólanum í Borgarnesi, kl. 17.00.
- Í Lindartungu kl. 20.00
Fundirnir eru öllum opnir og er vonast eftir góðri mætingu. Þátttaka og raddir íbúa skipta sköpum við stefnumótunina.
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
