Morgunkaffi á TEAMS: Staðalmyndir, fordómar og innflytjendur

Í erindinu fer Margrét Valdimarsdóttir dósent í félags- og afbrotafræði yfir algengar staðalmyndir um innflytjendur á Íslandi og hvernig þær móta umræðu, pólitík og stefnumótun. Fjallað er um hvernig upplýsingaóreiða getur ýtt undir ótta og fordóma, hvað rannsóknir segja raunverulega um öryggi, afbrot og samheldni í fjölbreyttu samfélagi, og hvaða leiðir eru færar til að draga úr fordómum og styrkja félagslega samstöðu.
Fyrirlesturinn er opinn öllum og er styrktur af Fjölmenningarskóla Vesturlands.
Skráningarlínkur: https://simenntun.is/courses/a-dofinni-morgunkaffi-stadalmyndir-fordomar-og-innflytjendur/
Nánari upplýsingar: jovana@simenntun.is
Dagsetning:
Byrjar: 25.02.2026, 09:00
Endar: 25.02.2026, 10:10
Staðsetning:
Teams
Verð:
Opinn fyrirlestur