Salka: Ástin og dauðinn – Erindi með Unni Ösp

Salka: Ástin og dauðinn – Erindi með Unni Ösp

Þriðjudaginn 10. mars kemur til okkar í Safnahús Borgarfjarðar, Unnur Ösp Stefánsdóttir og segir okkur frá hvernig bók verður að leikverki.
Um þessar mundir er verið að sýna í samstarfi við Þjóðleikhúsið á Sögulofi Landnámssetursins verkið Salka: Ástin og dauðinn, leikverk eftir Unni Ösp sem byggt er á fyrri hluta skáldsögu Halldórs Laxness, Sölku Völku, Þú vínviður hreini.

Unnur Ösp er fjögurra barna móðir búsett í Garðabæ sem hefur komið víða við á ferlinum. Unnur hefur unnið í sjónvarpi, leikhúsi og kvikmyndum. Hún hefur leikið víða um heim með Vesturporti og unnið til fjölda verðlauna fyrir störf sín sem leikkona, leikstjóri og leikskáld. Hún hlaut fálkaorðuna fyrr á þessu ári fyrir störf sín í þágu leiklistar og samfélagsmála.

Allir velkomnir

Almenningsbókasöfn um land allt sameina krafta sína undir merkjum verkefnisins Læsi á stöðu og baráttu kvenna í tilefni af Kvennaári 2025 og er þessi viðburður liður í því og nýtur styrks frá Bókasafnssjóði.

Dagsetning:

Byrjar: 10.03.2026, 17:00
Endar: 10.03.2026, 18:00

Staðsetning:

Safnahús Borgarfjarðar Bjarnabraut 4-6

Verð:

frítt